Íþróttir, tómstundir og ýmis námskeið

Arnardalur - Félagsmiðstöð

Kvöldstarf Arnardals

Félagsmiðstöðin Arnardalur hóf starfemi sína 12. janúar 1980.

Í Arnardal er unnið út frá hugmyndafræði sem byggir á barna- og ungmennalýðræði og tryggir áhrif barna og ungmenna í starfi.

Áhersla er lögð á samvinnu, virðingu, reynslunám, félagsfærni, sjálfstyrkingu, samfélagslega virkni og þátttöku.

Síðast en ekki síst er verið að vinna að forvörnum og skýr afstaða tekin gegn neyslu vímuefna og annarri neikvæðri hegðun.

Félagsmiðstöðvar eru vettvangur þar sem ungt fólk fær tækifæri til að koma hugmyndum sínum á framfæri  og í framkvæmd, vinna að áhugamálum sínum og fást við skemmtileg verkefni.

Arnardalur er hluti  af Frístundamiðstöðinni Þorpinu við Þjóðbraut 13.

Hægt er að fylgjast með starfi Arnardals bæði á Facebook og Instagram

Opnunartími

  • Þriðjudagskvöld kl. 19:30 – 22:00
  • Miðvikudagskvöld kl. 19:30 – 22:00
  • Föstudagskvöld kl. 19:30 – 22:00

Frekari upplýsingar um starf Arnardals veitir Ívar Orri Kristjánsson í síma 433-1250.

Einnig er hægt að fylgja

Dagstarf Arnardalur 

Dagstarf Arnardals er ætlað 10 - 15 ára börnum og unglingum sem vilja taka þátt í skipulögðu tómstundastarfi eftir að skóladeginum lýkur og til kl. 16:00.

Dagskráin er ákveðin í samráði við unglingana og getur innihaldið námskeið, klúbbastarf og fleira. 

Í dagstarfinu er lögð mikil áhersla á að hvetja unglingana til þess að taka þátt í kvöldstarfi Arnardals og veittur stuðningur til þess ef þörf er á. 

Frekari upplýsingar um dagstarfið veitir Ársæll Rafn Erlingsson í síma 433-1250.

K567

Félagsmiðstöðvarstarf fyrir 10 – 12 ára. K567 er yngra starf félagsmiðstöðvarinnar Arnardals. Í gegnum tíðina hefur 10 – 12 ára starf í Þorpinu verið starfrækt í ýmiskonar formi. Meginmarkmið starfsins er að virkja börn til félagslegrar þátttöku í samneyti við aðra undir handleiðslu starfsfólks.

Frekari upplýsingar um starf Arnardals veitir Ívar Orri Kristjánsson, deildarstjóri æskulýðs- og forvarnarmála bæði í tölvupósti og í síma 433-1250. Hægt er að fylgjast með starfi Arnardals á Instagram og Facebook.