Jólaævintýri í Garðalundi

Sannkölluð jólagleði verður í Garðalundi laugardagskvöldið 15. desember þar sem ævintýraheimur jólanna mun ráða ríkjum. Dagskráin hefst klukkan 19:00 þegar kveikt verður á ljósunum hans Gutta, til minningar um Guðbjart Hannesson.

Jólagleði í Garðalundi var fyrst haldin fyrir jólin 2016 og hefur þátttaka bæjarbúa verið framar björtustu vonum.  Hugmyndin með Jólagleði í Garðalundi er að fara út eftir kvöldmat með vasaljós sem getur verið mjög spennandi í hugum litla fólksins. Margvíslegum ævintýraheimum verður komið fyrir um alla skógrækt þannig að fólk getur rölt um og séð fjöldann allan af fígúrum á sveimi. Það er aldrei að vita hvað gæti gerst. Foreldrar eru hvattir til að klæða sig og börnin vel til útivistar og undirbúa ímyndunarafl allrar fjölskyldunar.