Ljúfir jólatónar á svæði Guðlaugar

Ljúfir jólatónar Hönnu Þóru Guðbrandsdóttur við undirleik Birgis Þórissonar verða á svæði Guðlaugar.

Útskriftarnemar FVA verða með kakó og fleira til sölu milli kl. 13-17 til styrktar útskriftarferðar næsta vor. 

Um er að ræða dagskrárlið í viðburðinum Ljúf og nærandi jólastemning í Guðlaugu alla laugardaga fram að jólum.