Strandganga - lýðheilsugöngur 2019

Akraneskaupstaður og Íþróttabandalag Akranes í samstarfi við Ferðafélag Íslands endurtaka leikinn frá síðasta ári og bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Frábærir sjálfboðaliðar leiða göngurnar og verður frítt í sund að loknum göngum fyrir göngugarpa.  Göngurnar hefjast alltaf kl. 18:00 og er tilgangur þeirra að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. Mikilvægt er að klæða sig eftir veðri og taka með sér vatn í brúsa. Börn skulu ávallt vera í fylgd með fullorðnum.

Miðvikudagurinn 11. september
Strandganga.  Gangan hefst  kl. 18:00 við Leyni, nánar tiltekið  við listaverkið “Himnaríki” sem staðsett er rétt innan við Höfða. Gengið verður meðfram ströndinni að tjaldstæðinu við Kalmansvík. Einhverjir fróðleiksmolar gætu fylgt með á leiðinni. Gert er ráð fyrir að gangan taki um 1 1/2 -2 klukkustundir. Gönguna leiða Anna Bjarnadóttir og Hallbera Jóhannesdóttir.