Sementspokinn - stolt Sementsverksmiðjunnar

Yfirlitssýning um sögu Sementspokans, blaðsins sem Starfsmannafélag Sementsverksmiðjunnar gaf út í rúma fjóra áratugi. Garðar H. Guðjónsson blaðamaður flytur erindi um útgáfusögu Sementspokans, en Garðar er höfundur samnefndar greinar sem birt er í Árbók Akurnesinga 2018. Árbókin  2018 kynnt við opnun sýningar. Léttar veitingar. Allir velkomnir. Gamlir starfsmenn Sementsverksmiðjunnar eru sérstaklega hvattir til að mæta.