Heilsueflandi samfélag á Akranesi stendur fyrir hreyfingarátaki Skagamanna, „Skagamenn umhverfis jörðina".
Brottför eru þann 3. maí næstkomandi og heimkoma væntanleg 30. maí. Teknar hafa verið saman gagnlegar upplýsingar fyrir þátttakendur:
Hversu langt er ferðalagið? Já það er ekki nema 40.075,017 km.
Hvernig ferðast ég? Þú reimar á þig góðan skóbúnað og klæðir þig eftir veðri og ferð út að ganga, hlaupa eða hjóla. Öll hreyfing utandyra telur!
Hvernig skrái ég hreyfinguna? Þú skráir hreyfinguna inn á Strava. Þar er hópur sem heitir „Skagamenn umhverfis jörðina". Stillir forritið á „run" og leggur af stað. Saman söfnum við kílómetrum!
Hvert er markmiðið? Það er að ganga frá Akranesi og umhverfis jörðina í því markmiðið að efla lýðheilsu skagamanna.
Taktu þátt í skemmtilegu ferðalagi og förum SAMAN umhverfis jörðina!