Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tónleikarnir eru merkilegir fyrir þær sakir að þetta verður í 40. sinn sem Bubbi stendur fyrir Þorláksmessutónleikum.
Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 39 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.