Íþróttir, tómstundir og ýmis námskeið

Hestamannafélagið Dreyri

Hestamannafélagið Dreyri var stofnað 1. maí 1947. Félagsvæðið er Akranes og Hvalfjarðarsveit, þ.e frá Hvalfjarðarbotni að Borgarfjarðarbrú. Hesthúsahverfi Dreyra er á Æðarodda rétt fyrir utan Akranes og þar eiga einnig Dreyrafélagar félagsheimili. Á svæðinu má finna 35 hesthús, tvö 18 hesta hús en flest húsin eru 12 hesta og svo nokkur 8 hesta. Þar að auki má finna sauðfé í nokkrum húsana sem lífgar upp á umhverfið.

Á Æðarodda er löglegur hringvöllur fyrir íþróttakeppni, upphitunarvöllur, stórt gerði og svokölluð „tamningatunna“. Skeiðbraut /kappreiðabraut með áhorfendabrekku er á Barðanesi sem er austan við Æðarodda og tilheyrir Hvalfjarðarsveit.

Nánari upplýsingar um æfingatíma og fleira: