Akrafjall er eitt þeirra fjalla sem tiltölulega auðvelt er að ganga á og hentar því fjölskyldufólki sérstaklega vel.
Á Langasandi er hægt að baða sig í sjónum og njóta útsýnisins í Guðlaugu sem er heit laug staðsett í grjótgarðinum á Langasandi.
Akratorg hefur frá upphafi verið miðpunktur mannlífs og menningarviðburða á Akranesi.
Við gönguleiðina á útivistarsvæðinu við Elínarhöfða eru fimm skilti sem innihalda stuttan fróðleik um bæi sem voru á þessu svæði en eru núna horfnir.
Breiðin er syðsti hluti Akraness og þar er að finna einn elsta steinsteypta vita landsins sem var reistur 1918.
Skemmtileg þjóðsaga glæðir Elínarhöfða skemmtilegum töfrum og gönguferð um Kalmansvík er ógleymanleg.
Garðalundur er skammt ofan Byggðasafnsins í Görðum og við hlið golfvallarins.
Akranes er fullkominn staður fyrir göngu- og hjólaferð.
Við Kalmannsbraut er skilgreint hundasvæði þar sem hundum er sleppt lausum og þaðan er stutt í sjóinn til að leyfa þeim að leika og synda.
Jaðarsbakkalaug er 25 m útisundlaug með 5 heitum pottum, gufu og vatnsrennibraut. Skemmtileg sundlaug fyrir fjölskylduna, sundkappann og til sólbaðs. Sundlaugin er opin alla virka daga frá kl. 6:00 - 21:00 og um helgar frá kl. 09:00 - 18:00.
Langisandur er um eins kílómetra löng strandlengja og hefur í gegnum tíðina gegnt miklu hlutverki í daglegu lífi bæjarbúa sem fjölbreytt útivistarsvæði.
Á Akranesi eru 17 leiksvæði sem staðsett eru í öllum hverfum bæjarins og í göngufæri við heimilin.
Skógræktarfélag Akraness eru með tvö svæði í sinni umsjón, Slaga sem er í suðvesturhlíð Akrafjalls, og svæði sunnanmegin við þjóðveg 509 í Garðaflóa.