Þjóðhátíðardagurinn á Akranesi

Í ár verður fallið frá hefðbundnum 17. júní hátíðahöldum á Akratorgi vegna Covid-19. Boðið verður upp á hátíðardagskrá í streymi á netmiðlum Akraneskaupstaðar kl. 14:00. Bæjarbúar eru hvattir til að skreyta nærumhverfi í tilefni dagsins og gera sér glaðan dag með sínu fólki. Myndum frá þjóðhátíðardeginum má gjarnan deila á  Instagram og merkja með #Skagalif og #visitakranes. Nokkrir útdráttarvinningar eru í boði, gjafabréf á veitingastaði bæjarins, vinningshafar verða valdir af handahófi.

Dagskrá 17. júní á Akranesi

  • Byggðasafnið í Görðum opið frá kl. 10:00-17:00
  • Messa í Akraneskirkju kl. 13:00
  • Fimleikafélag Akraness verður með sölu á blöðrum og öðrum 17. júní vörum í anddyri Tónlistarskólans frá kl. 11:00-16:00
  • Hátíðarþáttur Akraneskaupstaðar frumsýndur kl. 14:00, sjá hér að neðan.