Kaffibolli á kóvidtímum - Ein á ferð í heimsfaraldri

Helga Ólöf Oliversdóttir, sjúkraliði á Akranesi, sá það í byrjun Covid-faraldursins síðasta vor að veiran myndi hafa afgerandi áhrif á samskipti og daglegar venjur fólks. Í stað þess að hitta vini sína daglega, til dæmis í skipulögðum gönguferðum ákvað hún að fara í sjálfskipaða sóttkví. Því fer hún ein á hverjum morgni í gönguferð, tekur með sér kaffibolla og kaffi og stillir bollanum upp í náttúrunni – og tekur mynd.

Myndirnar eru nú orðnar um 200 talsins, og verða til sýnis í gluggum Tónbergs - Tónlistarskólans á Akranesi á Vökudögum 2020. Þar geta gestir og gangandi notið þeirra í örygginu úti undir beru lofti.