Frostbiter - Hryllingsmyndahátíð

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin í fimmta skiptið á Akranesi dagana 12-13 mars. Þar verða sýndar íslenskar stuttmyndir í bland við erlendar auk þess sem hryllingsmyndin Psycho Goreman verður frumsýnd hér á landi.
Auk kvikmyndasýninga verður PubQuiz með horror ívafi, kjötsúpa og hryllingsheimildarmynd og scriptlab fyrir fólk til að vinna í handritum sínum.
Dagskrá er að taka á sig mynd og verður kynnt innan tíðar.