Hrollvekjuhúsið á Byggðasafninu

Hrollvekjuhúsið á Byggðasafninu verður haldið þann 1. nóvember í ár og verður opið 19:00-21:00

Auður Líndal ásamt nemendum í samvinnu við Byggðasafnið í Görðum bjóða ykkur að skelfa hressilega á beinunum! 

Þorir þú?

Ath. Hentar ekki fyrir lítil börn og viðkvæmt fólk. Hver og einn ber ábyrgð á sér og sínum.

Biðröðin getur orðið ansi löng svo við mælum með því að fólk klæði sig vel.