Jólatrésskemmtun á Akranesi

Kveikt verður á jólaljósum á Akratorgi laugardaginn 26. nóvember kl 17:00.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á þennann árlega fjölskylduviðburð þar sem við tendrum jólaljósin á jólatréinu okkar á Akratorgi, laugardaginn 30. nóvember. Þetta er kærkomið tækifæri fyrir fjölskyldur og vini til að koma saman, njóta góðra stunda og fagna komu jólahátíðarinnar í notalegri og hátíðlegri stemmningu.
 
Hjörvar Gunnarsson ætlar sjá til þess að dagskráin gangi smurt, Liv Åse Skarstad flytur hátíðarræðu og hluti Jólasöngdætra þær Hanna Þóra og Ylfa Flosa syngja fyrir okkur fagra tóna við undirleik Flosa Einarssonar. Hver veit nema jólasveinarnir láti sjá sig og gleðji börnin.
 
Til að slá botninn í þessa skemmtilegu dagskrá ætlar Fjöliðjan að bjóða á jólatónleika á 1. hæð Landsbankans undir leiðsögn Mána Björvinssonar - Íþróttafélög úr bæjarfélaginu verða einnig með kaffisölu á sömu hæð - Um að gera að næla sér í rjúkandi bolla og styðja við þeirra frábæru störf!
 
Sundfélag Akraness verða með ljúffenga kakósölu frá 16:00-19:00, grípið ykkur endilega gúmmelaði og styðjið við þetta frábæra íþróttafélag sem heldur einnig úti Útvarpi Akranes og verða þau með útsendingu af 3 hæðinni líkt og í fyrra og hvetjum við öll til að stilla á 95.0 föstudag - sunnudags.